VEISLA – ÁRSHÁTÍÐ – STAFFAPARTÝ – ÞORRABLÓT
Á Bryggjuhúsinu breytum við sérstökum stundum í ógleymanlega upplifun.
Hvort sem þú ert að skipuleggja afmæli, viðskipta- eða fjölskyldukvöldverð, eða glæsilega veislu, þá býður Bryggjuhúsið, sögufræga húsið við gömlu höfnina upp á fullkomið umhverfi.
Alls 500 gestir í standandi veislu og allt að 200 gestir í sitjandi veislu. Hvert rými er með sinn sjarma – engin veisla er of lítil fyrir okkur.
Njóttu frábærrar íslenskrar matargerðar, framúrskarandi þjónustu og einstakrar stemningar þar sem hefð og nútími mætast. Við sérsníðum veisluna að þínum óskum — allt frá matseðli og vínum til skreytinga og afþreyingar — svo viðburðurinn verði einstakur.
Leyfðu okkur að halda næstu veislu fyrir þig á Bryggjuhúsinu — þar sem góður matur og gott fólk mætast við höfnina.
venues and menus
Our venues at a glance
Small Group Menu (10-50 guests)
Group Menu (50+ guests)
Festive Season Menu 2026
virtual tour
Vinhöllin
Standing and cocktail tables
Can be separated into three sections
Seated Max : 50 pax
Standing Max : 100 pax
Main Dining Room
Seated Max : 70 pax
Standing Max : 120 pax
Basement Bar
Seated Max : 50 pax
Standing Max : 50 pax
Second Floor
Seated Max : 160 pax
Standing Max : 240 pax
Hafðu samband
Ýmir tekur ykkur líka fagnandi: Netfang: ymir@bryggjuhusid.is
Til þess að við getum svarað þér hratt og örugglega þá biðjum við um eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn og símanúmer
- Dagsetning, tími og tímalengd
- Tegund viðburðar (afmæli, fyrirtækjaviðburður, brúðkaup o.s.frv.)
- Fjölda gesta (áætlað)
- Óskir um matseðil eða þjónustuform (þjónað til borðs, hlaðborð o.s.frv.)
- Ofnæmi eða sérstakar mataróskir
- Séróskir (tónlist, skreytingar, afþreying o.fl.)
Við svörum fljótt með persónulegu tilboði og hugmyndum að matseðli.
Bryggjuhúsið – þar sem góður matur og gott fólk mætast við höfnina
